Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.3.2018

11.3.2018 15:58

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru þó á köflum á Suðurnesjum. 

Það er hálka á Fróðárheiði og á sunnanverðu Snæfellsnesi en krapi og skafrenningur á Útnesvegi. Vegir á Vesturlandi eru annars mikið til greiðfærir þótt sums staðar séu hálkublettir.

Á Vestfjörðum er víða hálka eða snjóþekja og sums staðar jafnvel talsverður skafrenningur.

Vegir eru nánast auðir við Húnaflóa en þar fyrir austan er víðast hvar hálka eða snjóþekja og sumstaðar ofankoma og skafrenningur. Þæfingsfærð er á Hófaskarði eins og er en moksturstæki er á staðnum.

Hálka og snjóþekja ásamt éljum eða skafrenningi er víða á Austurlandi en greiðfært er á Suðausturlandi frá Hvalnesi suður um.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.