Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 11.3.2018

11.3.2018 10:50

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á köflum á Suðurnesjum. 

Hálka eða hálkublettir eru á Snæfellsnesi en flughált og skafrenningur er á Útnesvegi. Vegir á Vesturlandi eru annars mikið til greiðfærir en hálkublettir sumstaðar á fjallvegum.

Á Vestfjörðum er víða hálka eða snjóþekja og nokkuð víða skafrenningur. Þæfingsfærð er á köflum eftir snjókomu í nótt en unnið er að hreinsun.

Á Norðurlandi vestra eru hálka eða hálkublettir og einhver éljagangur en þar fyrir austan er víðast hvar hálka, snjóþekja og sumstaðar skafrenningur

Hálka, snjóþekja, snjókoma eða éljagangur er á flestum vegum á Austurlandi og sumstaðar skafrenningur. Vegir með suðausturströndinni eru greiðfærir.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.