Tilkynning um færð og ástand
Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.5.2018
Ábendingar frá veðurfræðingi, fimmtudaginn 10. maí
10. maí. kl. 18:10
Litur: Gulur
Í kvöld
og nótt kólnar um suðvestan- og vestanvert landið. Frystir á helstu
fjallvegum eftir miðnætti með tilheyrandi hálku. Eins gæti hæglega gert
snjóföl s.s. á Hellisheiði, Mosfellsheiði.
Færð og aðstæður
Hálkublettir eru á Hrafnseyrarheiði og snjóþekja er á Dynjandisheiði. Annars eru allar aðalleiðir greiðfærar á landinu. Þoka er á Holtavörðuheiði.
Viðgerð á Miðfjarðarárbrú
Umfangsmikil viðgerð stendur yfir á brúnni yfir Miðfjarðará hjá Laugarbakka og er áætlað að vinnan standi út júlí. Umferð er stýrt með ljósum.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum þarf sums staðar að takmarka ásþunga umfram það sem almennt gerist. Sjá nánar hér.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.