Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning - 10.3.2018

10.3.2018 17:32

Færð og aðstæður

Vegir á Suður- og Suðvesturlandi eru greiðfærir en hálka eða hálkublettir eru á köflum á Suðurnesjum. 

Hálka eða snjóþekja er á utanverðu Snæfellsnesi en Fróðárheiði er ófær. Vegir á Vesturlandi eru að öðru leyti mikið til greiðfærir.

Á Vestfjörðum er víða hálka eða snjóþekja. Snjóþekja og skafrenningur er á fjallvegum á sunnanverðum Vestfjörðum. Þæfingsfærð er á Vatnsfjarðarhálsi og Klettshálsi. 

Á Norðurlandi vestra eru vegir að miklu leyti auðir en þar fyrir austan er víðast hvar hálka eða snjóþekja.

Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi en þæfingsfærð er á Vatnsskarði eystra. Vegir með suðausturströndinni eru greiðfærir.

Skemmdir á slitlagi

Eftir veðurfarið að undanförnu hefur mikið borið á slitlagsskemmdum á vegum. Á þessum árstíma er aðeins hægt að bregðast við með ófullkomnum bráðabirgðaviðgerðum og því eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát við þessar aðstæður.

Þingskálavegur

Þingskálavegur (vegur 268) er ófær vegna vatnaskemmda ofan við bæinn Hóla.

Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi

Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.