Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

7.5.2016 9:33

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturland.

Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir. Hálka er á Holtavörðuheiði en hálkublettir eru á Bröttubrekku.

Á Vestfjörður er snjóþekja eða hálkublettir á nokkru fjallvegum. Þæfingur er á Dynjandisheiði en hálkublettir á Hrafnseyrarheiði.  Vegir á láglendi eru greiðfærir.

Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir. En élagangur og snjóþekja er á Siglufjarðarvegi og á Þverárfjalli en hálkublettir eru á Vatnsskarði.

Norðaustanlands er þæfingur á Tjörnesi og  Hólasandi annars er snjóþekja eða hálkublettir mjög víða.

Á Austurlandi eru vegir að mestu greiðfærir en snjóþekja er á Möðrudalsöræfum, Vopnafjarðarheiði og á Fagradal, hálkublettir eru á Fjarðarheiði en þæfingur er á Breiðdalsheiði.

Ófært er um Öxi.



Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér