Umferðarþjónusta - Tilkynning
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturland.
Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en hálkublettir eru á Vatnaleið og á Fróðárheiði.
Á Vestfjörður er snjóþekja eða hálkublettir á nokkru fjallvegum. Þæfingsfærð og skafrenningur er á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði og aðeins fært vetrabúnum fjórhjóladrifsbílum. Vegir á láglendi eru greiðfærir.
Á Norðurlandi vestra eru vegir að mestu greiðfærir.
Norðaustanlands eru vegir greiðfærir að mestu á láglendi en eitthvað er um snjóþekja eða hálkublettir. Snjóþekja er á Hólasandi og krapasnjór á Dettifossvegi. Víða er þoka.
Á Austurlandi eru vegir greiðfærir að mestu en hálkublettir eru á Breiðdalsheiði, á Vatnsskarði eystra, á Vopnafjarðarheið og á Möðrudalsöræfum.
Vegurinn um Öxi er lokaður.
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér