Tilkynning um færð og ástand

Umferðarþjónusta - Tilkynning

3.5.2016 7:10

Ábendingar frá veðurfræðingi

Víða á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi hefur snjóað nokkuð frá í gærkvöldi. Á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum er hvasst og lítið skyggni, en skárra á Holtavörðuheiði. Dregur mikið úr bæði snjókomu og vindi, þegar líður á morguninn, einkum eftir kl. 10.

Færð og aðstæður

Vegir eru greiðfærir á Suður- og Suðausturlandi.

Á Vesturlandi er hálka á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku og hálkublettir á Svínadal en annars að mestu greiðfært.

Snjóþekja er á flestum fjallvegum á Vestfjörðum en þungfært á Steingrímsfjarðarheiði.  Ófært eru á Hrafnseyrar- og Dynjandisheiði.  Vegir á láglendi eru að mestu greiðfærir en þó er krap á nokkrum köflum.

Á Norðurlandi vestra er krapi nokkuð víða en  þæfingsfærð er á milli Sauðárkróks og Hofsóss. Þungfært er á Þverárfjalli en unnið að hreinsun.

Norðaustanlands er hálka á Öxnadalsheiði og í kringum Mývatn og einnig á Hófaskarði. Snjóþekja er á Tjörnesi, Hólasandi og Mývatnsöræfum. Ófært er á Dettifossvegi.

Á Austurlandi eru vegir greiðfærir á láglendi en þæfingsfærð og skafrenningur er á Möðrudalsöræfum, hálka á Fjarðarheiði og hálkublettir á Oddskarði.  Vegurinn um Öxi er ófær.


Vinna við Borgarfjarðarbrú

Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð  og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.

Þungatakmarkanir

Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér