Umferðarþjónusta - Tilkynning
Ábendingar frá veðurfræðingi
Í dag kólnar smám saman á norðanverðu landinu og úrkoma á láglendi verður meiri
slydda en rigning. Norðvestantil hvessir og fer að snjóa á öllum helstu fjallvegum frá
Borgarfirði norður yfir Vestfirði og austur yfir Öxnadalsheiði. Þar er útlit fyrir
talsverða snjókomu og skafrenning í nótt og fyrramálið.
Færð og aðstæður
Vegir eru greiðfærir á Suður-og Vesturland. Nesjarvallaleið er opinn.
Á Vestfjörðum eru vegir greiðfærir fyrir utan hálkublettir á Hrafnseyrarheiði.
Á Norðurlandi vestra eru vegir greiðfærir en éljagangur er á Öxnadalsheiði.
Á Norðausturlandi eru vegir að mestu greiðfærir en éljagangur er í Mývatnssveit og á Víkurskarði. Snjóþekja er á Hólasandi, Mývatnsöræfum og á Vopnafjarðarheiði.
Á Austurlandi eru vegir að mestu greiðfærir en snjóþekja og éljagangur á Möðrudalsöræfum og Breiðdalsheiði en hálkublettir eru á Háreksstaðaleið og Vatnsskarði eystra, hálkublettir og éljagangur eru á Fjarðarheiði. Ófært er á Öxi.
Greiðfært er með Suðausturströndinni.
Vinna við Borgarfjarðarbrú
Vegna vinnu við Borgarfjarðarbrú er önnur akreinin á brúnni lokuð og er umferð stýrt með ljósum. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki 20. júní nk.
Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum er ásþungi sums staðar takmarkaður við tíu, eða jafnvel sjö tonn. Nánari upplýsingar má sjá hér