Fréttir
  • Umferðin hlutfallsleg breyting
  • Umferðin samanlagt
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Umferðarmet á Hringvegi í nóvember

mikil aukning á umferð í nóvember

7.12.2022

Umferðin á Hringvegi í nóvember jókst um ríflega 11 prósent frá sama mánuði fyrir ári. Umferðin hefur aldrei verið meiri í nóvember. Líklegt er að gott veðurfar hafi leitt til aukinnar umferðar. Útlit er fyrir að umferðin í ár verði um fjórum prósentum meiri en hún var í fyrra.

Milli mánaða
Umferðin í nýliðnum mánuði, yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, reyndist rúmlega 11% meiri en í sama mánuði á síðasta ári. Má ætla að gott veðurfar í nóvember hafi haft þarna veruleg áhrif. Með þessari aukningu var fyrra met, frá árinu 2019, slegið um rúmlega 8%.

Mest jókst umferðin um Norðurland eða um tæplega 21% en minnst um höfuðborgarsvæðið eða um rétt rúmlega 8%. Aukning var yfir alla teljara og mest jókst umferðin um teljara á Mýrdalssandi eða tæplega 27% en minnst um teljara við Úlfarsfell eða tæp 7%.


Samanburðartafla






 

Frá áramótum
Nú hefur umferðin aukist um rúmlega 4% það sem af er ári miðað við sama tímabil á síðasta ári.  Mest hefur umferð aukist um Austurland eða um tæplega 14% og minnst um höfuðborgarsvæðið eða um 1,5%.

Umferð eftir vikudögum
Umferð hefur aukist í öllum vikudögum. Mest hefur umferð, það sem af er ári, aukist á fimmtudögum eða um tæplega 6%, en minnst eykst umferðin á mánudögum eða rétt rúmlega 2%.

Mest er ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.

Horfur út árið 2022
Nú þegar aðeins einn mánuður er eftir af árinu stefnir umferð ársins, á Hringvegi, í að verða um 4% meiri en hún var á síðasta ári.