Fréttir
  • Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 28. október á Hilton hóteli.

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 28. október 2022

Fjölbreytt dagskrá - skráning stendur yfir

24.10.2022

Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2022 verður haldin föstudaginn 28. október á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut, kl. 09.00-16.30. Fjölbreytt og spennandi dagskrá. 

Almenn skráning - smelltu á hlekkinn. 

Dagskráin er fjölbreytt og endurspeglar það margháttaða rannsókna- og þróunarstarf sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. 

Sextán rannsóknaverkefni verða til umfjöllunar og samhliða veggspjaldasýning með um 12 verkefnum. Listi yfir veggspjöld eru hér fyrir neðan. 

Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almenns áhugafólks um samgöngur og rannsóknir.  

Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2021. 

Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar liggur í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki er endilega einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.

Ráðstefnustjóri verður Páll Valdimar Kolka.

 

 Dagskráin

09:00 Setning ráðstefnuBergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar
09:10 Byggjum grænni framtíð: Leiðin að vistvænni mannvirkjagerðÞóra Margrét Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri Byggjum grænni framtíð og teymisstjóri nýsköpunar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
09:30 Aukið hlutfall á endurunnu malbiki í ný slitlögBjörk Úlfarsdóttir, Colas Ísland
09:45 Leir í malarslitlögumHafdís Eygló Jónsdóttir, Vegagerðin
10:00 ROADEX rannsóknir á umferðarminni vegumÞorbjörg Sævarsdóttir, Vegagerðin
10:15 Kaffihlé og veggspjaldasýning 
10:45 Ný tenging milli forsteypts stöpulveggjar og staðsteypts sökkulsFranz Sigurjónsson, Háskóli Íslands
11:00 Betri kostnaðaráætlanirBaldvin Einarsson og Guðrún María Guðjónsdóttir, EFLA
11:15 Staðsetningar- og eftirlitskerfi fyrir baujur sem nýtir DGNSS og LoraWan fjarskiptiÞorsteinn Sæmundsson, Háskóli Íslands
11:30 Fyrirspurnir
11:45 Hádegismatur
13:00 Samgöngumat - grunnur að leiðbeiningumÓlöf Kristjánsdóttir, Mannvit, og Cecilía Þórðardóttir, Velocity Transport Planning
13:15 Vinstribeygjur - Slysagreining á mismunandi útfærslum varinna vinstribeygjufasa á ljósastýrðum gatnamótum höfuðborgarsvæðisinsDavíð Guðbergsson, VSÓ Ráðgjöf
13:30 Samanburður á ferðatíma Strætó og einkabílsins innan höfuðborgarsvæðisinsDaði Baldur Ottósson, EFLA
13:45 Deiliskipulag þjóðvega í þéttbýliAndrea Kristinsdóttir, VSÓ Ráðgjöf
14:00 Kortlagning hávaða með CNOSSOS-EUÓlafur Hafstein Pjetursson,  Trivium ráðgjöf
14:15 Brýr í hringrásarhagkerfiMagnús Arason, EFLA
14:30 Fyrirspurnir
14:45 Kaffihlé
15:15 Strandlínubreytingar á Suðausturlandi frá 1903 til 2021, Ingibjörg Jónsdóttir, Háskóli Íslands
15:30 Notkun fjarkönnunargagna til að ákvarða þröskulda fyrir skriðuhættu á ÍslandiEsther Hlíðar Jensen, Veðurstofan
15:45 Rannsóknir og vöktun á hreyfingum við vegstæði Siglufjarðarvegar um Almenninga með síritandi GNSS staðsetningatækniHalldór Geirsson, Háskóli Íslands
16:00 Rannsóknir á tengslum veðurfarsbreytinga og hreyfinga á og við vegstæði Siglufjarðarvegar um AlmenningaElías Arnar Nínuson, Háskóli Íslands
16:15 Fyrirspurnir
16:30 Ráðstefnuslit – léttar veitingar

 Veggspjaldasýning í forrými 


1

Áhrif loftslagsbreytinga á eiginleika meðal- og hárennsli íslenskra vatnasviða, Phillip Crochet, sjálfstæður ráðgjafi

2

Ástandsskoðun sprautusteypu í íslenskum veggöngum – 1. áfangi, Benedikt Ó. Steingrímsson, Guðbjartur Jón Einarsson, Matthías Loftsson og Freyr Pálsson. Mannvit og Vegagerðin

3

Greining á viðbragðstíma ökumanna, Daði Baldur Ottósson, Ásmundur Jóhannsson og Arna Kristjánsdóttir, EFLA og Akureyrarbær

Greining snjóflóða með mælitækjum á jörðu niðri - prófanir á Vestfjörðum, Harpa Grímsdóttir, Óliver Hilmarsson og Örn Ingólfsson, Veðurstofan
5

Grímsvatnahlaup 2021 og 2022, Eyjólfur Magnússon, Finnur Pálsson, Krista Hannesdóttir, Joaquin Belart, Sidney Gunnarsson og Benedikt Gunnar Ófeigsson, Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, Landmælingar Íslands og Veðurstofan

6

Klæðing: Hefur ummyndun áhrif á viðloðun steinefna?, Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, Hafdís Eygló Jónsdóttir og Erla María Hauksdóttir, Mannvit og Vegagerðin

7

Landmótun fornra ísstrauma á Norðausturlandi, Nína Aradóttir og Ívar Örn Benediktsson, Háskóli Íslands

Malbiksrannsóknir 2022, Björk Úlfarsdóttir, Birkir Hrafn Jóakimsson og Pétur Pétursson, Colas Ísland og Vegagerðin 
9

Slitþolin hástyrkleikasteypa 50 mm lag á brýr - þróun og blöndun – framhald, Gísli Guðmundsson, Helgi S. Ólafsson, Kjartan B. Kristjánsson, Gylfi Sigurðsson og Ólafur H. Wallevik, Háskólinn í Reykjavík, Tæknisetur og Vegagerðin.

10

The Flexible and Sustainable Port Network – Dealing with Uncertainty in the Port Planning Process, Majid Eskafi og Guðmundur F. Úlfarsson. EFLA og Háskóli Íslands

11

Using recycled construction wastes as wetland substrates for pollutant removal in cold climate, Selina Hube, Tarek Zaqout, Hrund Ólöf Andradóttir og Bing Wu, Háskóli Íslands

12Þróun nýrrar tengingar milli forsteypts stoðveggjar og staðsteypts sökkuls í brúargerð, Rúnar Steinn Smárason og Ólafur Sveinn Haraldsson, Háskólinn í Reykjavík og Vegagerðin
13 2-1 vegir: Þekking og reynsla frá löndum sem hafa innleitt 2-1 vegi, Ragnar Gauti Hauksson og Andri Rafn Yeoman, EFLA