Fréttir
  • Veghefill er notaður til að rífa þykkan ísinn sem liggur á Axarvegi.
  • Vonast er til að hægt verði að opna fyrir umferð á morgun, föstudaginn 25. mars.
  • Á stöku stað voru skaflarnir 5 metra háir.
  • Á stöku stað voru skaflarnir 5 metra háir.

Opnað fyrir umferð um Axarveg um helgina

Snjómokstur fór fram í vikunni

24.3.2022

Unnið er að því að opna veginn yfir Öxi. Mikill og þykkur ís liggur yfir veginum og nokkurn tíma mun taka að losa hann af. Stefnt er að því að opna fyrir umferð föstudaginn 25. mars en vegfarendur þurfa að fara varlega vegna klaka sem enn er á veginum.

„Við byrjuðum að moka þriðjudaginn 22. mars og vorum 16 tíma að komast yfir heiðina með snjóblásara. Aðstæður eru dálítið óvenjulegar en minni snjór er á heiðinni sunnanverðri en við erum vanir en mun meiri snjór norðanmegin þar sem vanalega er lítil snjósöfnun,“ segir G. Rúnar Sigurðsson yfirverkstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar á Höfn í Hornafirði. Hann segir óvenjulegar vindáttir hafa mest að segja um þetta ástand en vindáttin var úr norð- norðaustri þegar mest snjóaði.

Axarvegurinn er nú mokaður í fyrra fallinu en oft hefur ekki verið mokað fyrr en um mánaðamótin mars/apríl. „Notendur hafa þrýst mjög á um að opna veginn sem fyrst,“ segir Rúnar.

SG vélar sjá um snjómokstur á Axarveginum. Fjögur tæki voru að störfum í gær, miðvikudag. „Við vorum með einn lítinn og einn stóran snjóblásara, veghefil og eina JCB gröfu sem var notuð til að moka frá ræsum og sjá um að veita vatni frá veginum.“

Rúnar vonast til að hægt verði að opna veginn fyrir umferð á föstudag. Áfram þarf þó að vinna við að fullmoka veginn á föstudag og laugardag. „Það er óvenju mikill klakabunki á veginum, sums staðar upp í 30 cm þykkur. Við notum veghefilinn til að rífa ísinn af og verðum vonandi búnir að ná ísnum úr brekkunum að sunnanverðu í dag (fimmtudag),“ segir Rúnar en hvetur vegfarendur til að fara varlega meðan enn er ís á veginum. „Það geta myndast holur í ísnum sem vont er að aka ofan í.“