Opið fyrir umsóknir um styrk til samgönguleiðar (styrkvegir)
nú er sótt um á mínum síðum
Umsóknarfrestur vegna umsókna um styrkvegi er til 15. apríl nk. Nú þarf að sækja um þessa styrki rafrænt og er það gert á "Mínum síðum" Vegagerðarinnar. Því er þörf á rafrænum skilríkjum eða Íslykli. Að öðru leyti er fyrirkomulag umsóknarferilsins óbreytt.
Frekari upplýsingar er að finna hér á heimasíðunni undir þjónusta.
Sótt er um hér eða með því að smella á lásinn hér efst til hægri á síðunni.
Skv. vegalögum nr. 80/2007 er heimilt að ákveða fjárveitingu í vegáætlun til að styrkja tilteknar samgönguleiðir sem ekki falla undir skilgreiningar vega skv. lögunum. Heimilt er að veita styrki til eftirfarandi samgönguleiða skv. reglum nr. 1155/2011:
- vega yfir fjöll og heiðar sem ekki teljast þjóðvegir;
- vega að bryggjum;
- vega að skíðasvæðum;
- vega að skipbrotsmannaskýlum;
- vega að fjallskilaréttum;
- vega að leitarmannaskálum;
- vega að fjallaskálum;
- vega innan uppgræðslu- og skógræktarsvæða;
- vega að ferðamannastöðum;
- vega að flugvöllum og lendingarstöðum sem ekki eru áætlunarflugvellir, en taldir eru upp í samgönguáætlun.
Umsækjandi skal leggja fram greinargóða lýsingu á fyrirhugaðri framkvæmd sem felur m.a. í sér upplýsingar um staðsetningu og notkun vegar, áætlaðan kostnað og aðra fjármögnun verksins.