Fréttir
  • Úr vefmyndavél

Mokstur yfir Fjöllin um helgina

Mokað þegar veður leyfir, ekki á laugardag vegnar slæmrar veðurspár

14.3.2014

Fjöllin, Mýrvatns- og Möðrudalsöræfi, verða ekki mokuð á morgun laugardag vegna slæmrar veðurspár. Dagana þar á eftir verður mokað alla daga ef veður leyfir og stefnt á að fært verði og opið á milli klukkan 13:00 og 17:00, allt saman þó háð veðri. 

Sama gildir um Vopnafjarðarheiðina.

Þessi opnunartími getur lengst ef veður helst gott.

Þetta gildir næstu daga þangað til annað verður ákveðið.  

Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast með færð og tilkynningum um hana á heimasíðu Vegagerðarinnar eða afla sér upplýsinga í síma 1777.