Fréttir
  • Við Héðinsfjarðargöng

Héðinsfjarðargöng eru lokað vinnusvæði og umferð um þau stranglega bönnuð!

Verkinu lýkur ekki fyrr en sumarið 2010

8.4.2009

Vegna fréttaflutnings undanfarið vegna gegnumbrots á gangahluta á milli Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar vilja verktakar Héðinsfjarðarganga, Háfell og Metrostav koma á framfæri eftirfarandi tilkynningu.

Héðinsfjarðargöng eru enn í fullri vinnslu og eru þungavinnuvélar og önnur stórvirk og sérhæfð tæki enn að störfum við verkið. Verkinu lýkur ekki fyrr en sumarið 2010 og er öll óviðkomandi umferð á vinnusvæðinu stranglega bönnuð á verktímanum. Verktaki vill taka það skýrt fram að mjög varasamt getur verið fyrir óviðkomandi að fara inn í göngin þar sem enn á eftir að vinna við vegagerð, fráveituskurði, lokaklæðningar og frágangi á vatnsaga. Beinlínis lífshættulegt getur verið að ferðast um göngin án eftirlits. Í

tilefni af lokasprengingu á þessum seinni hluta ganganna sem áætlað er að verði á fimmtudag stendur til að fulltrúar verkkaupa og verktaka ásamt vegamálastjóra og samgönguráðherra aki í gegnum göngin frá Siglufirði og til Ólafsfjarðar en að öðru leiti er vinnusvæðið og þar með talin göngin stranglega lokuð óviðkomandi umferð.

Engin vígsluathöfn er áætluð fyrr en við opnun ganganna sumarið 2010. Þá er móttaka í Tjarnarborg eingöngu ætluð boðsgestum verktaka en ekki almenningi eins og skilja mátti fréttaflutning.