Umferðarkönnun í Víkurskarði
Fimmtudagana 21. júlí, 13. október 2005, laugardagana 23. júlí og 15. október 2005 var umferð könnuð á Hringvegi um Víkurskarð, en sá staður tilheyrir Norðaustursvæði Vegagerðarinnar. Könnunin stóð yfir frá kl. 08:00 – 23:00 alla dagana.
Könnunarstaðurinn var uppi á miðju Víkurskarði n.t.t. við bílastæði efst í skarðinu.
Tilgangur með könnuninni er að afla upplýsinga um umferð á milli þéttbýlisstaða á Norðurlandi eystra, einnig gætu niðurstöður nýst við undirbúning hugsanlegra jarðganga í gegnum Vaðlaheiði.
Úr umferðarkönnuninni fengust m.a. upplýsingar um:
- Umferð milli svæða
- Tilgang ferðar
- Farþegafjölda
- Hlutfall þungra bifreiða
- Hlutfall erlendra ökumanna
- Búsetu ökumanna.
- Kyn bílstjóra.
Skýrslan í heild sinni er hér í pdf skrá:
Víkurskarð - Umferðarkönnun 21., 23.júlí, 13. og 15. október 2005, Skýrsla um verkefnið "Viðtalskönnun á þjóðvegi 1 austan Akureyrar" (Ný útgáfa 26.09.2006. gerðar hafa verið minnháttar lagfæringar á skýrslu.)