Fréttir
  • Eitt af erindum morgunfundarins fjallar um sögu Landeyjahafnar. Á myndinni er Herjólfur IV að sigla inn í Landeyjahöfn haustið 2022.

Hvað gerir hafnadeild Vegagerðarinnar?

Morgunfundur Vegagerðarinnar um hafnir og rannsóknir tengdar höfnum og sjóvörnum.

8.4.2024

Á morgunfundi Vegagerðarinnar, fimmtudaginn 11. apríl klukkan 9:00-10:15, verður fjallað um hafnadeild Vegagerðarinnar og rannsóknir tengdar höfnum, sjóvörnum og sjólagi, auk þess sem sérstakt erindi verður um Landeyjahöfn. Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 og í beinu streymi.

Starfsemi Vegagerðarinnar er fjölbreyttari en margir myndu halda. Innan Vegagerðarinnar er starfrækt hafnadeild sem sinnir fjölbreyttum verkefnum tengdum höfnum og sjóvörnum, gerir  hafna- og strandrannsóknir, vinnur með höfnum landsins að því að móta hafnabætur og hefur umsjón með ríkisstyrktum hafnarframkvæmdum. Hafnadeildin hefur einnig umsjón með Landeyjahöfn, sem er eina höfnin í eigu Vegagerðarinnar.

Á fundinum mun Fannar Gíslason, forstöðumaður hafnadeildar, fjalla um verkefni deildarinnar í stórum dráttum.

Landeyjahöfn fær veglegan sess á fundinum en Kjartan Elíasson verkfræðingur fjallar um sögu hafnarinnar og reynsluna af henni.

Bryndís Tryggvadóttir, verkfræðingur, fjallar um sjóvarnir og lágmarkslandhæð á lágsvæðum. Þar ræðir hún um sjóvarnir og hvernig þær eru hannaðar út frá mati á flóðahættu og fleiri þáttum til að takmarka ágjöf sjávar og flóðahættu.

Morgunfundurinn verður haldinn í húsnæði Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Opið er á meðan húsrúm leyfir og það verður heitt á könnunni. Fundinum er einnig streymt.

Dagskrá fundarins:

  • Opnun fundar. Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar
  • Hafnadeild Vegagerðarinnar – hvað gerir hún? Fannar Gíslason, forstöðumaður hafnadeildar
  • Landeyjahöfn – sagan frá upphafi. Kjartan Elíasson, verkfræðingur á hafnadeild
  • Sjóvarnir og lágmarkslandhæð á lágsvæðum. Bryndís Tryggvadóttir, verkfræðingur á hafnadeild

Fundarstjóri: G. Pétur Matthíasson

Spurningar

Fyrirspurnir má senda inn í gegnum vefsíðuna slido.com. Aðgangsorð: #hafnir https://app.sli.do/event/9B28K78VitaEfhX3aQ4FNg

Streymi

Fundinum verður einnig streymt á vef Vegagerðarinnar, www.vegagerdin.is og á Facebook. Streymt  verður á eftirfarandi slóð: https://www.youtube.com/live/jhzvwpY7MGM?si=D6tu66oSVfmLAtdk">https://www.youtube.com/live/jhzvwpY7MGM?si=D6tu66oSVfmLAtdk">https://www.youtube.com/live/jhzvwpY7MGM?si=D6tu66oSVfmLAtdk

Hægt er að horfa á streymið hér:
Hvað gerir hafnadeild Vegagerðarinnar?