Fréttir
  • Umferðin.is, upplýsingavefur Vegagerðarinnar, hlaut 1. verðlaun sem samfélagsvefur ársins 2023.
  • Nýjustu upplýsingar um færðina er á umferdin.is

Umferðin.is - Samfélagsvefur ársins 2023

Margverðlaunaður vefur

22.3.2024

Umferðin.is, upplýsingavefur Vegagerðarinnar, hlaut 1. verðlaun sem samfélagsvefur ársins 2023 þegar Íslensku vefverðlaunin 2024 voru veitt á dögunum. 

Hönnunarstofan Kolofon og Greipur Gíslason unnu að umferðin.is í nánu samstarfi við Vegagerðina. Samtök vefiðnaðarins (SVEF) standa að Íslensku vefverðlaununum. Þetta er í annað sinn sem umferðin.is hlýtur þessi verðlaun.  

 Í umsögn dómnefndar um umferðin.is segir: „Vefurinn sinnir gríðarlega mikilvægu samfélagslegu hlutverki og gerir það sérlega vel. Hann er í stöðugri þróun og eru flóknar upplýsingar settar fram á skýran og kjarngóðan hátt. Það skín í gegn að hér hefur verið vandað til verks.“ 

Upplýsingavefurinn Umferðin.is var settur í loftið í október 2022 og hefur verið í stöðugri þróun síðan þá. Markmiðið er að auðvelda vegfarendum að finna upplýsingar um ástand og færð á vegum og helstu upplýsingum um umferð. Á umferðin.is eru upplýsingar um færð, veður, vetrarþjónustu, vegaframkvæmdir, umferðartölur, þungatakmarkanir og fleira gagnlegt. Vefurinn er sérstaklega hugsaður fyrir snjalltæki og er mjög þægilegur í notkun.

Verðlaunavefur  

Frá því að Umferðin.is fór í loftið hefur vefurinn unnið til eða verið tilnefndur til eftirfarandi verðlauna:

IIIDAwards 2023 
Hlaut verðlaun í flokki Emergency and Safety 
 
SVEF 2023 
Hlaut verðlaun sem Samfélagsvefur ársins 2022 
 
FÍT 2023 
Hlaut gullverðlaun í flokki upplýsingahönnunar 
Hlaut silfurverðlaun í flokki vefsvæða 

2023 UT-verðlaun Ský
Tilnefning til verðlauna