Enn slegið met í umferðinni á Hringvegi í apríl
aukningin samt minni en undanfarna mánuði
Umferðin á Hringvegi jókst um tæplega fjögur prósent í apríl sem er heldur minni aukning en mánuðina á undan. Eigi að síður hefur ekki áður mælst meiri umferð í apríl. Umferðin hefur aukist mjög mikið það sem af er ári og má reikna með að umferðin í ár aukist um tíu prósent sem er gríðarlega mikil aukning, gangi spár eftir.
Umferð milli mánaða
Umferðin í nýliðnum apríl jókst heldur hóflegar en hún gerði á tímabilinu janúar
til mars, borið saman við sama mánuð á síðasta ári. Aukningin reyndist tæp 4%,
en sú aukning eins og í mánuðunum á undan, leiddi til þess að nýtt met
var slegið í umferðinni í apríl á Hringveginum.
Mest jókst umferðin Suðurland eða um tæp 10% en minnst í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um 1%.
Af einstaka stöðum jókst umferð mest yfir teljara á Mýrdalssandi eða um 26% minnst um teljara á Geithálsi eða um 0,1%.
Frá áramótum
Nú hefur umferðin aukist um tæp 13%, frá áramótum, miðað við sama tímabil á síðasta ári. Þó slík stærðargráða sé ekki einsdæmi, miðað við árstíma, er hún samt um þrisvar sinnum
meiri en í meðalári.
Mest hefur aukningin orðið um Suðurland, eða tæp 23% aukning, en minnst um Austurland, eða rúmlega 6% aukning.
Umferð eftir vikudögum
Umferð hefur aukist í öllum vikudögum en mest á mánudögum
eða um tæp 21%. Minnst hefur umferðin aukist á sunnudögum. Umferð hefur
aukist um tæplega 14% á virkum dögum en um rúmlega 11% um helgar. Að
umferð aukist meira á virkum dögum en um helgar gefur vísbendingu um aukin umsvif
í þjóðfélaginu.
Það sem af er ári hefur mest verið ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum.
Horfur út árið 2023
Nú þegar 4 mánuðir eru liðnir af árinu bendir reiknilíkan
umferðardeildar til þess að mikil aukning verði í umferðinni nú í ár, miðað við síðasta
ár, eða um 10%. Þessi spá byggir á því að einkenni umferðar verði hefðbundin út
árið.