Fréttir
  • Nýtt vegrið er komið á brúna yfir Reykjanesbraut á akreininni niður Ártúnsbrekku.
  • Hér sést nýja vegriðið á brúnni yfir Elliðaárnar á akreininni niður Ártúnsbrekku.
  • Brúin yfir Köldukvísl í Mosfellsbæ. Myndirnar eru teknar þegar unnið var við mótauppslátt vegna nýs vegriðs en þessu verki er lokið.
  • Nýju vegriðin eru hönnuð fyrir þann umferðarhraða sem er á veginum
  • Nýja vegriðið sést vel þegar gengið er undir brúna við Elliðaárnar.
  • Nýju vegriðin eru öðruvísi en þau gömlu.
  • Brúin yfir Köldukvísl í Mosfellsbæ. Myndirnar eru teknar þegar unnið var við mótauppslátt vegna nýs vegriðs en þessu verki er lokið.

Ný vegrið á brýr yfir Elliðaár og Reykjanesbraut

Vegriðsátak hófst árið 2019

26.8.2022

Unnið er að endurnýjun vegriða á brúm yfir Elliðaár og á Reykjanesbraut. Verklok eru áætluð í september. Framkvæmdir þessar eru hluti af vegriðsátaki Vegagerðarinnar sem hófst árið 2019 til að auka umferðaröryggi. 

Vegriðin sem fyrir voru eru 15-20 ára gömul en stóðust ekki þá staðla sem miðað er við í brúarvegriðum í dag. Nýju vegriðin eru hönnuð fyrir þann umferðarhraða sem er á veginum og eru sterkari og með öðruvísi útlit.

Verkefni þetta er eitt af nokkrum vegriðsverkefnum sem ákveðið var að vinna í ofangreindu vegriðsátaki. Þegar er búið að skipta um vegrið á brúm yfir Kaldakvísl og Leirvogsá á Hringvegi (1) í Mosfellsbæ, en það var gert árið 2020, og á brúm á Hafnarfjarðarvegi yfir Kársnesbraut og Nýbýlaveg árið 2021. Einnig á að setja  að setja upp ný vegrið á Borgarfjarðarbrú haustið 2022 og á brýrnar yfir Hafnarfjarðarveg við Hamraborg og á Digranesvegi í Kópavogi haustið 2022. Þá verður skipt um vegrið á Glerá á Akureyri eystri-kant á þessu ári. Samtals eru þetta 14 verkefni í vegriðsskiptum. 

Á brúm fyrir neðan Ártúnsbrekku var hægt að nota  fyrirliggjandi festingar fyrir vegriðsstoðirnar. Verktakinn setur saman einingar á athafnasvæði yfir daginn og kemur svo með þær einingar og hífir á staðinn yfir nóttina.

Þegar er búið að skipta um vegrið á brúnum yfir Elliðaár og Reykjanesbraut á akreininni niður Ártúnsbrekku og svo verður skipt um á brúnum á akreininni upp Ártúnsbrekku núna í ágúst.  

Vegriðið er hannað að VBV verkfræðistofu og smíðað hjá Vik Örsta í Noregi. 

Samtals eru þetta 4 brýr fyrir neðan Ártúnsbrekku og eru yfir Elliðaár og Reykjanesbraut.

Helstu magntölur eru eftirfarandi:

  • Niðurtekt brúarvegriðs 495 m  
  • Niðurtekt bitavegriðs utan við brýr 154 m  
  • Uppsetning brúarvegriðs á steyptan kantbita  495 m  
  • Bitavegrið utan við brú 480 m

Aðalverktakinn við verkið er D.Ing-Verk ehf. og undirverktaki er Rekverk. 

Eftirlit með verkinu er í höndum  VBV verkfræðistofa og Vegagerðin er með verkefnastjórn og umsjón. 

Þessi grein birtist í 5. tbl. Framkvæmdafrétta 2022.    Rafræna útgáfu má finna hér.      Áskrift að Framkvæmdafréttum er án endurgjalds og hægt er að skrá sig fyrir áskrift með því að senda póst á sogi@vegagerdin.is.