Fréttir
  • Afleitt veður og snjókoma varð til þess að ekki var hægt að opna heiðina fyrr en í gærkvöldi.
  • Loka varð Öxnadalsheiði á miðvikudagsmorgun og hún var opnuð í gærkvöldi
  • Vel gengur að ryðja burt snjó á Öxnadalsheiði.
  • Öxnadalsheiði
  • Öxnadalsheiði
  • Vetur konungur minnti á sig í vikunni.

Öxnadalsheiði opin á ný eftir mikið fannfergi

Snjókoma og illviðri hafði áhrif á snjómokstur

14.1.2022

Öxnadalsheiði var opnuð fyrir umferð í gærkvöldi. Heiðin var lokuð í næstum einn og hálfan sólarhring vegna veðurs og snjóþunga. Vegfarendur gátu farið um Siglufjörð og þar hefur verið ágætis færð þrátt fyrir nokkuð hvassviðri.

Vetur konungur minnti rækilega á sig í vikunni þegar loka þurfti Öxnadalsheiði vegna illviðris og snjókomu. Heiðin var lokuð frá því klukkan níu á miðvikudagsmorgun og fram til klukkan átta í gærkvöldi.  

Starfsmenn Vegagerðarinnar og verktakar hafa unnið hörðum höndum að því að opna Öxnadalsheiði fyrir umferð. Gert var hlé á snjómokstri seint í gærkvöldi en byrjað aftur eldsnemma í morgun. Nota þurfti tvo mokstursbíla, veghefil og snjóblásara við verkið.

Grétar Ásgeirsson, verkstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar á Akureyri, segir að á þessari stundu sé unnið að því að blása út ruðningum með snjóblásurum. Hann segir ástandið hafa verið verst í Bakkaselsbrekku.

„Veðrið hefur verið afleitt og það bætti fljótt í snjóinn, svo við gátum ekki opnað fyrr en í gærkvöldi. Það var einbreitt með útskotum í Bakkaselsbrekku í nótt en núna er umferð komin á báðar akreinar,“ segir Grétar en mikil umferð var um Öxnadalsheiðina í gærkvöldi og aftur í morgun.

Nokkur dæmi voru um að vegfarendur sinntu ekki lokunarskyldu og töfðu þannig snjómokstur. 

„Þótt það séu lokunarhlið eru alltaf einhverjir sem freistast til að fara á heiðina. Við urðum því að byrja á að draga fjóra bíla í burtu, sem höfðu farið inn fyrir lokunarhliðið. Næsta vetur verður sú breyting gerð að sett verður tvöfalt hlið ef það þarf að loka veginum um Öxnadalsheiði. Til að opna hliðið þarf fólk þá að fara út úr bílunum, sem vonandi verður til þess að það hugsi sig tvisvar um áður en það fer fram hjá lokunum,“ segir Grétar.

Eins og staðan er núna er ástandið á Öxnadalsheiði ágætt, að hans sögn. „Það er éljagangur og hægur vindur. Veðrið er þó fljótt að breytast og það gæti farið að skafa þegar líður á daginn eða í kvöld,“ lýsir Grétar.

Vegfarendur eru hvattir til að fylgjast vel með veðri og færð á www.vegagerdin.is, Twitter-síðu Vegagerðarinnar eða hafa samband við umferðarþjónustu Vegagerðarinnar í síma 1777.