Fréttir
  • Vinnuaðstæður eru erfiðar enda unnið innan um mikla og hraða umferð.
  • Á hverjum morgni þarf að setja upp vinnusvæðamerkingar sem síðan eru teknar niður við lok vinnudags.
  • Unnið er að því að skipta út vegriði á Hafnarfjarðarvegi á brúm yfir Nýbýlaveg.

Skipt um vegrið innan um mikla umferð

Brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar vinnur að verkefni á Hafnarfjarðarvegi

26.2.2021

Flókið getur verið að vinna við umferðarmikla vegi. Því hafa starfsmenn brúarvinnuflokks Vegagerðarinnar frá Hvammstanga fengið að kynnast undanfarna daga en þeir vinna nú að því að skipta út vegriði og vegriðsstoðum á Hafnarfjarðarvegi, á brúm yfir Nýbýlaveg.

Vilhjálmur Arnórsson er yfirverkstjóri brúarvinnuflokksins. Hann segir flokkinn vanari því að vinna verk sín á umferðarlitlum stöðum úti á landi. „Síðasta verkefni okkar var endurbygging á brú í Helgafellssveit á Snæfellsnesi og þar áður vorum í Borgarfirði og á Vestfjörðum,“ segir Vilhjálmur og viðurkennir að aðstæðurnar á Hafnarfjarðarvegi séu ansi krefjandi.

„Við þurfum að loka alveg einni akrein við vinnu okkar sem veldur nokkrum umferðartöfum. Þó reynum við að takmarka vinnutíma okkar en við byrjum ekki fyrr en klukkan 9 og hættum klukkan 16 á daginn,“ lýsir Vilhjálmur.

Daglega þarf að setja upp vinnusvæðamerkingar og taka þær niður í lok vinnudags. Hraðinn er mikill á þessum vegi en Vilhjálmur segir þó flesta virða bæði merkingar og hraðatakmarkanir, en þær eru 50 km/klst meðan á framkvæmdum stendur.    

„Við upplifum ekki að við séum í neinni hættu þannig. Við leggjum áherslu á að loka okkur vel af. Erum með öryggispúðabíl okkur til varnar og síðan vörubíl með vagn þar sem við geymum allt það efni sem við þurfum að nota yfir daginn.“ Þær eru ekki margar pásurnar sem starfsmennirnir sjö fá yfir daginn. „Við reynum að vinna þetta hratt, förum ekki í mat heldur hendum í okkur samloku eða einhverju slíku þegar tækifæri gefst.“

Verkefnið felst í því að skipta út gömlu vegriði sem ekki stenst lengur öryggiskröfur fyrir nýtt og betra vegrið sem meðal annars er hannað með það fyrir augum að snjór mokist síður niður á Nýbýlaveg þegar verið er að hreinsa snjó af Hafnarfjarðarvegi. „Þetta er erfið líkamleg vinna enda verið að vinna með þunga hluti,“ segir Vilhjálmur. Hann býst við að verkið taki í heild fimm til sex vikur, en brúarflokkurinn er núna að skipta út fyrsta vegriðinu af fjórum.