Fréttir
  • Umferðin uppsafnað
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir vikudögum

Aukning en minni en undanfarin ár

umferðin á höfuðborgarsvæðinu

13.12.2018

Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í nóvember jókst um 4,4 prósent um þrjú mælisnið Vegagerðarinnar. Umferðin í ár hefur aukist um 3 prósent sem er þrisvar sinnum minni aukning en í fyrra á sama tíma. Þannig hægir verulega á aukningunni í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu.

Milli mánaða 2017 og 2018
Umferðin í þremur mælisniðum Vegagerðarinnar í nóvember sl. jókst um 4,4% miðað við sama mánuð á síðasta ári.  Mest jókst umferðin yfir mælisnið á Vesturlandsvegi ofan Ártúnsbrekku eða um 5,8% en minnst um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi, sunnan Kópavogslækjar eða um 2,9%.

Núna hefur umferðin í nóvember aukist að jafnaði um rétt tæp 3% á ári að meðaltali frá árinu 2005, að telja.  Þessi aukning er rétt yfir meðalaukningu allra mánuða sem er 2,8% á sama tímabili.

Frá áramótum milli áranna 2017 og 2018
Núna hefur umferðin aukist um 3%, frá áramótum og er þetta tæplega þrisvar sinnum minni aukning en á sama tíma fyrir ári síðan.

Umferð vikudaga
Umferðin í nýliðnum mánuði jókst hlutfallslega mest á sunnudögum eða um 13,6%  en engu að síður var minnst ekið þá daga.  Minnst jókst umferðin á laugardögum eða um 1,1%.  Mest var ekið á föstudögum en minnst á mánudögum, virka daga. 

Horfur út árið
Núna er búist við því að umferðin í desember nk. muni geta aukist um 3,5% miðað við sama mánuð á síðasta ári.  Gangi það eftir mun umferðin nú í ár aukast um rétt rúmlega 3% miðað við árið á undan.  Þó að þessi vöxtur sé lítill í samanburði við síðustu ár er hann rétt rúmlega yfir meðalvexti frá árinu 2005 og mun viðráðanlegri að stærð en undanfarin tvö ár.