Mun minni aukning í umferðinni 2018
Umferðin jókst um 4,6 prósent
Umferðin í desember sl. á Hringveginum jókst um 3,4 prósent. Umferðin árið 2018 jókst þá í heild um 4,6 prósent á Hringveginum en fara þarf aftur til ársins 2013 til að finna minni aukningu á milli ára, aukning var mun meiri árin 2016 og 2017. Sjá töfluna hér neðst í fréttinni.
Milli
mánaða 2017 og 2018
Umferðin í
nýliðnum desembermánuði jókst um 3,4 % miðað við sama mánuð árið 2017. Þá er
ljóst að umferðin jókst í öllum mánuðum ársins fyrir utan febrúar en þá varð
2,6 % samdráttur. Mest jókst umferðin um Vesturland eða um 6,4 % en minnst
varð aukningin um Norðurland eða um 1,3 %. Mögulega hefur niðurfelling
gjaldskyldu í Hvalfjarðargöngum orðið til þess að umferðin hafi aukist þetta
mikið, á Vesturlandi, umfram aðra landshluta en næst mest jókst umferðin um
Suðurland eða um 5,1 %.
Frá
áramótum milli áranna 2017 og 2018
Nú liggur
það fyrir að umferðin á síðasta ári jókst um 4,6% yfir 16 lykilteljara á
Hringvegi miðað við árið 2017. Mest jókst umferðin um Suðurland eða um 7,4 % en
minnst um Norðurland eða um 2,5 %. Þó að heildaraukning yfir árið sé talsverð
þarf að fara aftur til ársins 2013 til að finna minni aukningu á milli ára.
Umferð
eftir vikudögum
Umferðin
jókst í öllum vikudögum og hlutfallslega mest á mánudögum eða 4,8% en minnst
jókst umferðin á sunnudögum eða um 1,5%. Mest var ekið á föstudögum en
minnst á þriðjudögum.
Ár | Aukning frá fyrra ári |
---|---|
2018 | 4,6 % |
2017 | 10,0 % |
2016 | 14,3 % |
2015 | 5,9 % |
2014 | 5,4 % |
2013 | 3,4 % |