Fréttir
  • Umferðin samanlagt
  • Umferðin hlutfallsleg breyting
  • Umferðin með spá út árið
  • Umferðin eftir mánuðum
  • Umferðin eftir vikudögum

Minni umferð á Hringvegi í janúar

Umferðin dróst saman um tæp 6 prósent

8.2.2022

Umferðin á Hringveginum dróst saman um nærri sex prósent í janúar miðað við janúarmánuð í fyrra. Umferð dróst mest saman í nágrenni höfuðborgarsvæðisins en jókst hinsvegar töluvert á Austurlandi. Umferð um teljara á Mýrdalssandi jókst mikið og meira en tvöfaldaðist.

Milli mánaða

Umferðin yfir 16 lykilteljara Vegagerðarinnar á Hringvegi, reyndist 5,6% minni í nýliðnum janúar borið saman við sama mánuð á síðasta ári.  Ástæða þessa samdráttar er mikill samdráttur á og við höfuðborgarsvæðið og á Vesturlandi, en umferð jókst á öðrum svæðum.

Tæplega 9% samdráttur mældist á og við höfuðborgarsvæðið en mest jókst umferðin um Austurland eða um rúmlega 13%.

Af einstaka sniðum þá dróst umferð mest saman í mælisniði á Hringvegi við Úlfarsfell eða um rúmlega 9% en mest jókst umferð í mælisniði á Hringvegi um Mýrdalssand eða um rúmlega 114%. 

Samanburðartafla







Umferð eftir vikudögum
Samdráttur í umferð varð í öllum vikudögum nema föstudögum. Mest dróst umferð saman á sunnudögum eða um 15% en umferð jókst um 4,6% á föstudögum.

Umferðin reyndist mest á föstudögum en minnst á þriðjudögum.  

Sjá einnig talnaefni .