Fréttir
Málþing um börn og samgöngur
18. nóvember í ráðhúsi Garðabæjar
Málþing um börn og samgöngur verður haldið mánudaginn 18. nóvember frá kl. 12.30 til 16.30 á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í samvinnu við Samgöngustofu og Vegagerðina. Málþingið verður haldið í Sveinatungu á Garðatorgi (Ráðhúsi Garðabæjar).
Á þinginu munu bæði ungir sem aldnir taka til máls og ræða stöðu barna í samgöngum í víðu samhengi. Í kjölfar fyrirlestra verða pallborðsumræður. Málþingið er öllum opið en nauðsynlegt er að skrá sig. Fundinum verður streymt í beinni útsendingu á vef Stjórnarráðsins.
Dagskrá
12:30 – Málþing sett
- Ávörp
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra - Þórunn Egilsdóttir, formaður samgönguráðs
- Umferðaröryggi - okkar mál!
Karín Óla Eiríksdóttir, formaður ungmennaráðs Grindavíkur - Hvernig við sjáum umferðaröryggið.
Atli Þór Jónsson og Fannar Freyr Atlason, björgunarsveitarmenn í Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu
- Samstarf við Samgöngustofu um að efla umferðaröryggi grunnskólabarna í sveitarfélaginu
Ólafur Hilmarsson, deildarstjóri við Grunnskólann í Hveragerði - „Komiði með hætturnar!“ Skipulag, þjóðvegir og börn.
Erna Bára Hreinsdóttir, forstöðumaður hjá Vegagerðinni - Pallborð með fyrirlesurum fyrir hlé
14:20 – Kaffihlé
- Hagnýting sálfræðilegrar þekkingar til að breyta ferðavenjum
Sigrún Birna Sigurðardóttir, samgöngu- og umferðarsálfræðingur - Mikilvægi umferðaröryggisáætlunar fyrir minni sveitarfélög
Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps - Öryggi barna í Reykjavík
Berglind Hallgrímsdóttir og Höskuldur Kröyer, samgönguverkfræðingar hjá Eflu og Trafkon - Pallborð með fyrirlesurum eftir hlé
- Saga Garðarsdóttir flytur gamanmál
16:30 – Málþingi lýkur
- Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.