Lítil aukning umferðar á höfuðborgarsvæðinu í ágúst
Útlit fyrir minnstu aukningu síðan 2012
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst jókst mjög lítið eða um 0,4 prósent. Umferðin frá áramótum hefur einungis aukist um 1,2 prósent og útlit er nú fyrir að heildaraukningin í ár geti numið 2,4 prósentum, samkvæmt reiknilíkani Vegagerðarinnar. Það yrði þá minnsta aukning síðan árið 2012.Milli
mánaða 2018 og 2019
Umferð
jókst samtals um 0,4% yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á
höfuðborgarsvæðinu í nýliðnum mánuði miðað við sama mánuð á síðasta ári. Þessi litla
heildaraukning er borin uppi af 1,5% aukningu í mælisniði ofan
Ártúnsbrekku því umferð í hinum tveimur sniðunum dróst saman um 0,4% og 0,2%.
Frá
áramótum
Nú hefur
umferð aukist um 1,2%, frá áramótum. Leita þarf aftur til ársins 2012 til
að finna minni aukningu miðað við árstíma.
Vikudagar
Umferðin
jókst í öllum vikudögum nema sunnudögum en þar mældist 1,5% samdráttur miðað við sömu
vikudaga í ágústmánuði 2018.
Mest var ekið á fimmtudögum en minnst á sunnudögum í nýliðnum mánuði.
Horfur
út árið 2019
Nú er gert
ráð fyrir að umferð geti aukist um 2,4% miðað við síðasta ár. Gangi það eftir
verður þetta minnsta aukning frá árinu 2012.