Fréttir
  • Umferð lítil

Hrun í umferðinni á Hringvegi

Allt að 42 prósenta minni umferð í ár en á sama tíma í fyrra.

24.3.2020

Það sem af er mars hefur umferðin á Hringveginum dregist saman um 20-25 prósent. Allt upp í 42 prósent þar sem mest er. Þetta er gríðarlega mikill samdráttur sem skýrist auðvitað að mestu af Covid-19 og snarfækkun ferðamanna en telja verður líka líklegt að slæmt veður undanfarnar vikur spili líka inn í. Þannig leggst allt á eitt. 

Þetta er mun meiri samdráttur en á höfuðborgarsvæðinu eða um tvöfalt meiri. Sjá eldri frétt.

Umferðin á Hringveginum hefur samtals dregist saman um tæp 20%, þegar öll mælisnið eru tekin með.  Ef hins vegar mælisniðið við Úlfarsfell er undanskilið fer samdrátturinn upp í 25%. Þessi samdráttur samsvarar um rúmlega einu prósentustigi á dag, meðan samdrátturinn á höfuðborgarsvæðinu nemur hálfu prósentustigi. Umferðin dregst því tvöfalt hraðar saman á Hringvegi utan höfuðborgarsvæðis en innan þess.
Þótt bæði 16 lykilteljarar á Hringvegi og 3 lykilmælisnið á höfuðborgarsvæðinu sýni góða fylgni við umsvif í þjóðarbúinu (hagvöxt/landsframleiðslu) þá sýna lykilteljarar á höfuðborgarsvæðinu mun betri fylgni.  Það mætti því segja, miðað við stöðuna fyrir helgi, að hagkerfið sé að kólna um 0,5% á dag. 

Ætlunin er að gera næstu samantekt á höfuðborgarsvæðinu á morgun miðvikudag. Líklegt má búast við auknum samdrætti með hertara samkomubanni og þeirri staðreynd að afar fáir ferðamenn eru enn í landinu.
Taflan sýnir umferðina 1.-23. mars hvort ár, fjöldi bíla um lykilteljara samanlagt.

Staðsetning á Hringvegi 2019 2020  Samdráttur í %
Mýrdalssandur  28.572   16.653 - 41,7 % 
Vestan Hvolsvallar

  80.312 

  57.772 - 28,1 % 
Á Hellisheiði191.962 145.599 - 24,2 % 
Á Geithálsi267.200211.713 - 20,8 % 
Við Úlfarsfell 728.021 636.578 - 12,6 % 
Um Hvalfjarðargöng156.738 121.062 - 22,8 % 
Við Hafnarfjall   97.279   71.037 - 27,0 % 
Á Holtavörðuheiði   27.593   18.108 - 34,4 % 
Við Gljúfurá    28.447   19.310 - 32,1 % 
Í Öxnadal   24.679   17.934 - 27,3 % 
Í Kræklingahlíð   71.451 

  52.695

- 26,3 % 
Á Mývatnsheiði   12.368    9.107- 26,4 % 
Á Mývatnsöræfum      7.577     4.452 - 41,2 % 
Á Möðrudalsöræfum      7.004    4.362 - 37,7 % 
Á Fagradal    23.242  18.877 - 18,8 % 
Við Hvalnes í Lóni      6.090    4.238 - 30,4 % 
 Samtals1.758.535 

1.409.497 

- 19,8 %