Hjólastólaaðgengi á fjórum leiðum á landsbyggðinni
Einn vagn kominn í notkun
Nýverið kom til landsins fyrsti sérsmíðaði vagninn með hjólastólalyftu sem ekur fyrir Strætó á landsbyggðinni. Vagninn er kominn í notkun á leið 57 (Reykjavík-Akureyri) hjá Hópbílum en von er á þremur vögnum til viðbótar.
Vegagerðin gerði kröfu um aðgengi fólks í hjólastólum í útboði landssamgangna sumarið 2020. Krafan snerist um að slíkir vagnar væru til taks fyrir leiðir 55 (Keflavík-Reykjavík), 56 (Akureyri-Egilsstaðir) og 57 (Reykjavík-Akureyri) og sameiginlega á leið 51 (Höfn-Reykjavík) og 52 (Reykjavík-Landeyjarhöfn), eða samtals fjórir vagnar.
Hópbílar sem hlutu útboð fyrir akstur á Reykjanesi, Suðurlandi, Vestur- og Norðurlandi, hafa nú fengið afhentan fyrsta sérsmíðaða vagninn með hjólastólalyftu og hefur hann þegar verið tekinn í notkun á leið 57 frá Reykjavík til Akureyrar. SBA hlaut útboðið fyrir Norður- og Norðausturland. Þar er von á einum sérsmíðuðum bíl með hjólastólaaðgengi sem notaður verður á leiðinni milli Akureyrar og Egilsstaða.
Fyrirkomulagið er með þeim hætti að farþegar sem þurfa aðgengi fyrir hjólastól hafa samband við þjónustuver Strætó í síma 540-2700, með minnst 24 klst. fyrirvara til að láta vita í hvaða ferð þarf sérútbúinn bíl. Þjónustuverið hefur samband við rekstraraðila til að tryggja að réttur bíll verði til staðar í umtalaðri ferð.
Bíllinn sem nú þegar er í notkun er frá Hollandi af gerðinni VDL og er eins og hinir vagnarnir sem von er á af lengstu mögulegu gerð vagna sem framleiddir eru í Evrópu. Hann er útbúinn hjólastólalyftu sem getur lyft a.m.k. 300 kg en lyftupallurinn er öruggur bæði í þurru og votu veðri.
Í bílnum er beltisbúnaður og búnaður til að tryggja að
stóllinn sé kyrr í vagninum. Festingar fyrir hjólastólana eru geymdar í
vagnlestinni þegar stæðið er ekki í notkun. Plássið í vagninum sem er ætlað
undir hjólastóla er ekki hægt að nýta undir hefðbundin vagnasæti.
Hér má sjá stutt myndband af því hvernig hjólastólalyftan virkar.