Fréttir
  • Covid meðalumferð 11.01.2021

Enn mun minni umferð vegna Covid

Nærri 20 prósenta minni umferð en í sömu viku í fyrra

11.1.2021

Áhrifa sóttvarnaraðgerða gætir enn í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu fyrstu daga ársins 2021. Umferðin í nýliðinni viku var nærri 20 prósentum minni en í sömu viku fyrir ári síðan. 

Nú þegar liðnar eru tvær staðalvikur af árinu 2021 þá mældist umferðin, yfir þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, 19,5% minni en í sömu staðalvikum árið 2020.  Mest dróst umferðin saman um mælisnið á Hafnarfjarðarvegi eða um 22,5% en minnst á Vesturlandsvegi eða um 10,6%.

Mismunur milli áranna 2020 og 2021 í staðalvikum 1-2:

Hafnarfjarðarvegur við Kópavogslæk     -22,5%
Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi    -25,3%
Vesturlandsvegur ofan Ártúnsbrekku     -10,6% 

Eins og sést á línuriti B má segja að mælanleg áhrif sóttvarnaraðgerða fara ekki að gæta, á umferðina, fyrr en viku 12 árið 2020. Það má því búast við áframhaldandi samdráttartölum næstu vikurnar, miðað við árið 2020, ef sóttvarnir verða með svipuðum hætti og verið hefur.