Ekki áður sést meiri aukning í umferðinni á Hringvegi á einu ári
Umferðin á Hringveginum jókst um rúm 11 prósent í nóvember
Umferðin á Hringveginum jókst um ríflega 11 prósent í nýliðnum nóvember og er gríðarleg aukning sem ekki hefur sést síðan árið 2007 í þessum mánuði. Útlit er nú fyrir að umferðin á Hringveginum í ár aukist um nærri 13 prósent sem yrði þá mesta aukning á einu ári síðan þessar mælingar hófust árið 2005. Aukning umferðar á Hringveginum er töluvert meiri en á höfuðborgarsvæðinu, sjá eldri frétt.
Milli mánaða 2015 og 2016
Umferðin í nýliðnum mánuði jókst um 11,3% miðað við sama mánuð á
síðasta ári, um 16 lykilteljara á Hringvegi.
Þetta er mesta aukning milli nóvember mánaða síðan árið 2007. Alls fóru
rétt rúmlega 61 þúsund ökutæki á degi hverjum um mælisniðin 16. Til samanburðar fóru tæp 53 þúsund ökutæki um
sömu snið árið 2007. Umferðin í nýliðnum
nóvember var því 15% meiri en árið 2007. Mest jókst umferðin um Austurland eða 28% en minnst um
Vesturland eða 8%.
Frá áramótum milli áranna
2015 og 2016
Umferðin hefur nú aukist um tæp 13% frá áramótum og er þetta
lang mesta aukning miðað við árstíma frá upphafi þessarar samantektar (árið 2005)
fyrir teljarana 16. Mest hefur umferðin
aukist um Austurland eða um rúmlega 30% en minnst um höfuðborgarsvæðið eða um tæplega
11%.
Umferð eftir vikudögum
Frá áramótum hefur umferðin aukist mest á sunnudögum eða um rúmlega 15% en minnst á föstudögum eða um tæp 9%.
Mest er ekið á föstudögum en minnst á þriðjudögum.
Horfur út árið 2016
Nú eru mestar líkur á því að umferðin í desember geti aukist
talsvert, ef marka má umferðarmynstur fyrri ára. En hafa verður í huga að
vetrarumferð á Íslandi er afar óviss enda mikið háð duttlungum veðurfarsins
hvað gerist. En varlega, miðað við reynslu
fyrri ára, má áætla aukningu í kringum 10%.
Gangi það eftir gæti heildarumferðin yfir mælisniðin 16 orðið tæpum 13%
meiri en árið 2015. Fyrir heilt ár hefur
ekki sést viðlíka aukning, frá upphafi samantektar.