Dýrafjarðargöng opnuð 25. október
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra opnar göngin rafrænt.
Dýrafjarðargöng verða opnuð sunnudaginn 25. október 2020. Opnunin verður með óvenjulegu sniði í ljósi þess ástands sem ríkir í þjóðfélaginu. Stutt athöfn fer fram klukkan 14 í húsnæði Vegagerðarinnar Borgartúni 7 þar sem Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra mun halda ræðu sem útvarpað verður í þá bíla sem bíða þess að aka í fyrsta sinn í gegnum göngin.
Ráðherra mun hringja í vaktstöð Vegagerðarinnar á Ísafirði sem opnar þá hliðin að göngunum beggja megin frá. Þar með verða göngin opin.
Vegurinn upp að göngunum verður opnaður klukkan 13 á sunnudeginum og Vestfirðingar eru hvattir til að mæta, hlusta á stutta ræðu inní bílum sínum og vera með þeim fyrstu til að aka í gegnum göngin.
Vígsla jarðganga er yfirleitt mikill viðburður enda hafa slík göng gríðarmikil áhrif á samgöngur í sveitarfélögum. Vestfirðingar hafa lengi beðið Dýrafjarðarganga sem koma í stað vegarins yfir Hrafnseyrarheiði sem hefur verið einn helsti farartálminn milli byggða á norðanverðum og sunnanverðum Vestfjörðum. Með tilkomu ganganna styttist Vestfjarðavegur um 27,4 km. Til stendur að halda veglegri viðburð með rísandi sól þegar aðstæður í þjóðfélaginu leyfa.
Viðburðinum verður einnig streymt rafrænt á facebooksíðu Vegagerðarinnar.