Aukning umferðar á Hringveginum 30% síðan 2007
Ærin aukning í júlí en heldur dregur úr aukningunni
Umferðin í júlí á Hringveginum jókst um 7,3 prósent sem er mikil aukning en heldur minni en verið hefur síðustu mánuði. Þannig að heldur dregur úr aukningar hraðanum. Frá árinu 2007 hefur umferðin aukist um heil 30 prósent á Hringveginum. Búast má við um 9 prósenta aukningu í ár sem er heldur minna en aukningin varð í fyrra.
Breyting milli mánaða 2016 og
2017
Umferð jókst um 7,3% á milli júlí mánaða 2016 og 2017.
Þó að aukningin sé ærin þá er þetta er minnsta aukning, milli mánaða, það sem
af er ári og fara þarf aftur til ársins 2014 til að finna minni aukningu milli
júlí mánaða.
Mest jókst umferðin um Norðurland eða um 12% en minnst jókst umferðin um Suðurland eða um 3,8%.
Umferðin hefur aldrei mælst meiri á Hringveginum í nokkrum mánuði frá upphafi mælinga en að meðaltali fóru um 108 þúsund ökutæki daglega um lykilsniðin 16. Til samanburðar fóru 82 þúsund ökutæki um þessi sömu mælisnið, fyrir 10 árum, árið 2007. Umferðin á Hringveginum hefur því vaxið um rúmlega 30% frá árinu 2007, þrátt fyrir að eitt efnahagshrun hafi átt sér stað á tímabilinu.
Breyting milli ára 2016 og
2017, frá áramótum
Umferð hefur nú aukist um 11,4%, frá áramótum miðað við sama tímabil
á síðasta ári. Þessu aukning er rétt rúmlega einu prósentustigi minni miðað við sama tíma á síðasta ári, en þá hafði umferðin aukist um 12,6% miðað við árið á undan.
Umferðin hefur vaxið mest, frá áramótum, um Austurland eða um 16,3% en minnstur hefur vöxturinn verið um Vesturland eða 9,2%.
Umferð eftir vikudögum
Það sem af er ári hefur umferð nú aukist alla vikudaga miðað síðasta ár. Mest hefur umferðin aukist á föstudögum eða um 12,6% sem
jafnframt er umferðarmesti dagur vikunnar. Minnst hefur umferðin hins vegar
aukist á mánudögum. Minnst er hins vegar ekið á þriðjudögum,
sjónarmuni minna en á mánudögum.
Horfur út árið 2017
Nú stefnir í að umferðin geti aukist um 9% milli áranna 2016
og 2017 sem er, ef af verður, heldur minni aukning en varð á síðasta ári en þá
jókst umferðin um rúmlega 13%, fyrir lykilsniðin 16.