Aldrei meiri umferð mælst í september á Hringveginum
sama gerðist í ágúst
Umferðin í september á Hringveginum jókst um meira en átta prósent og hefur aldrei mælst meiri í september, sama á við um ágúst sl. Nú stefnir í að umferðin í ár geti orðið 2,2 prósentum meiri en í fyrra og verði á svipuðu róli og metárið 2019.
Umferð milli
mánaða
Umferðin í
nýliðnum september var sú mesta, frá því að mælingar hófust, en umferðin jókst
um rúmlega 8% miðað við sama mánuð á síðasta ári. Þess má geta að umferðarmet
var einnig sett í ágúst. Aukning mældist á öllum landssvæðum og mest jókst
umferðin um Vesturland eða um 10,6%. Svipuð aukning varð um Norðurland.
Minnst jókst umferðin um teljara við höfuðborgarsvæðið eða um 6,6%.
Af einstaka mælistöðum jókst umferð mest um mælisnið á Mýrdalssandi eða um rúmlega 24% en minnsta aukningin varð mælisnið á Fagradal, á Austurlandi, eða um 3,7%.
Frá áramótum
Nú hefur umferðin
aukist um 3,7%, frá áramótum um lykilmælisnið Vegagerðarinnar á Hringvegi. Mest
hefur umferðin aukist um Austurland en minnst aukning í kringum höfuðborgarsvæðið.
Umferð eftir
vikudögum
Umferðin er
gjarnan mest á föstudögum en minnst á mánu- eða þriðjudögum.
Hlutfallslega hefur umferð aukist mest á fimmtudögum en minnst á mánudögum.
Horfur út árið
2022
Nú stefnir í að
umferð á Hringvegi geti aukist um 2,2% miðað við síðasta ár. Gangi sú spá
eftir mun umferðin verða sjónarmun meiri en metárið 2019, svo það gæti stefnt í
nýtt umferðarmet nú í ár.