Fréttir
  • Summa meðalumferðar á dag.
  • Vísitala meðalumferðar eftir landssvæðum.
  • Vísitala umferðar borin saman við vísitölu hagvaxtar.
  • Uppsöfnuð meðalumferð í hverjum mánuði.
  • Meðalumferð eftir vikudögum frá áramótum.
  • Hlutfallslegur mismunur lykilteljara á Hringvegi milli áranna 2022 og 2023.
  • Samanlögð meðalumferð á dag yfir 16 lykilteljara í febrúar, á Hringvegi.
  • Samantektartafla

Aldrei meiri umferð á Hringvegi í febrúar

Jókst um 22 prósent milli ára en aðeins 0,3% frá fyrra meti.

3.3.2023

Nýtt met var sett í febrúarumferð á Hringvegi (1), en aldrei áður hafa fleiri ökutæki verið mæld í febrúar. Umferðin reyndist þó aðeins 0,3% meiri en fyrra met, frá árinu 2020.

Ef umferðin er borin saman við sama mánuð á síðasta ári, reyndist aukningin vera tæp 22%.

Mest jókst umferð um Suðurland eða tæp 35% en minnst um mælisnið á og í grennd við höfuðborgarsvæðið eða tæp 17%.

Af einstaka mælistöðum reyndist aukningin mest um mælisnið á Mýrdalssandi eða rúmlega 58%.

Rétt er að benda á að umferð í febrúar 2022 var óvenju lítil.

Uppsöfnuð umferð sem af er árs

Fyrstu tvo mánuði ársins hefur umferðin aukist um rúmlega 17%, á Hringvegi. Mest hefur aukningin orðið á Suðurlandi og minnst við Höfuðborgarsvæði.

Á sama tíma, á síðasta ári, hafði umferð dregist saman um 11% miðað við árið 2021.

Umferð vikudaga

Frá áramótum hefur umferð aukist í öllum vikudögum.  Mest er aukningin á mánudögum, eða 36%,  en minnst á sunnudögum, eða 4%.

Umferð hefur að jafnaði aukist tvöfalt meira á virkum dögum, en um helgar, sem gæti gefið vísbendingu um aukin umsvif.

Mest er ekið á föstudögum en minnst á laugardögum.