Almenn verkefni 2019
Almenn verkefni 2019
Heiti verkefnis : | NorDust II - Líkanreikningar á svifryksmengun vegna umferðar | |
Verkefnastjóri : | ||
Stutt lýsing á verkefninu: | ||
NorDust II er samnorrænt verkefni sem tengir saman sérfræðinga í mengun vegna umferðar til að bæta þekkingu á götusvifryki. Stefnt er að því að gera mótvægisaðgerðir skilvirkari með betri líkanreikningum á uppruna og dreifingu svifryks vegna umferðar. Verkefnið byggir á þekkingu sem aflað var í NorDust verkefninu. Áherslurnar ráðast af þörfum gatnayfirvalda og því að bæta líkanið NORTRIP; sem notað er til að spá fyrir um uppsprettur svifryks og afdrif þess. Þannig verður hægt að meta áhrif aðgerða til að minnka svifryk og skipuleggja aðgerðir til að lágmarka svifryksmengun. Verkefnið byggir á feltmælingum, uppsettum og rauntíma, tilraunum á rannsóknastofum og líkanreikningum. Þannig verður leitast við að bæta þekkingu á myndun svifryks, hreyfingu þess (t.d. áhrifum vatns), áhrifum aðgerða (sópun gatna, þvottur, ...), myndun örplasts og að þróa NORTRIIP líkanið. | ||
Tilgangur og markmið: | ||
Helstu markmið og tilgangur NorDust II verkefnisins eru: * Finna og skilgreina bestu aðferðir, eða samblöndu að aðferðum, til að að lágmarka svifryksmengun byggt á fyrri rannsóknum (m.a. NorDust) og að meta nýjar aðferðir. |