Opnun tilboða

Vetrarþjónusta 2023-2026, Sauðárkrókur – Ketilás

10.3.2023

Opnun tilboað 7. mars 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á tilteknum þjónustu leiðinni Sauðárkrókur - Ketilás.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 19.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Vinnuvélar Símonar ehf., Sauðárkróki 91.650.000 107,7 21.015
Áætlaður verktakakostnaður 85.108.500 100,0 14.473
Steypustöð Skagafjarðar ehf., Sauðárkróki 84.450.000 99,2 13.815
Vélaþjónustan Messuholti ehf., Sauðárkróki 70.635.120 83,0 0