Norðfjarðargöng, forval
Vegagerðin auglýsir eftir þátttakendum í forvali vegna jarðganga milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, ásamt byggingu tilheyrandi forskála og vega. Um er að ræða 8,0 m breið, 7,5 km löng jarðgöng í bergi, styrkingu ganga, raf- og stjórnbúnað þeirra, um 366 m langa steinsteypta vegskála og um 5,0 km langa vegi.
Heiti verkefnisins er: Norðfjarðargöng
Helstu magntölur eru:
Gröftur jarðganga 420.000 m3
Sprautusteypa 17.000 m3
Steinsteypa 3.000 m3
Forskering 100.000 m3
Fylling 650.000 m3
Skila skal forvalsgöngum fyrir 13. nóvember 2012.
Eftiraldir verktakar og verktakasamstæður óskuðu eftir þátttöku í útboðinu:
Ístak hf., Reykjavík
Mestostav as, Tékklandi og Suðurverk hf., Hafnarfirði
IAV hf., Reykjavík og Marti Contractors ltd., Sviss