Hringvegur (1) Biskupstungnabraut - Hveragerði, Ölfusvegur um Varmá, eftirlit
Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit með útboðsverkinu Hringvegur (1) Biskupstungnabraut – Hveragerði, Ölfusvegur um Varmá. Verkið felur í sér eftirlit með nýbyggingu á u.þ.b. 780 m löngum vegkafla á Ölfusvegi og Sunnumörk í Hveragerði og gerð nýrrar brúar á Varmá norðan Suðurlandsvegar og reiðstígs undir brúna.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.
Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í september 2022.
Nöfn þátttakenda í útboðinu:
Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík
Verkís hf., Reykjavík
Þriðjudaginn 21. desember 2021 verður tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.