Auglýst útboð
Vetrarþjónusta 2018-2021, Kross – Húsavík - Lón
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2018-2021 á eftirtöldum leiðum:
- Norðausturvegur(85) Kross
– Aðaldalsvegur 25,7 km
- Norðausturvegur(85) Aðaldalsvegur
– Húsavík 18,1 km
- Norðausturvegur(85) Húsavík
- Fjallsvegur 33 km
- Kísilvegur (87) Norðausturvegur
– Hvammavegur 18 km
Heildarlengd vegakafla er 94,8 km.
Helstu magntölur á ári eru:
- Akstur mokstursbíls 33.000 km
Verklok eru 30. apríl 2021.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík frá og með miðvikudeginum 11. apríl 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 25. apríl 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.