Vestfjarðavegur (60) um Bjarnardalsá við Tröð
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í nýbyggingu vegkafla á Vestfjarðavegi (60) í Bjarnadal ásamt gerð nýrrar brúar á Bjarnadalsá.
Nýr vegkafli á Vestfjarðavegi 60 verður um 1,8 km langur, 8 m breiður með 3,5 m breiðum akreinum og 0,5 m breiðum öxlum. Ný brú yfir Bjarnadalsá verður 23 m löng eftirspennt plötubrú í einu hafi á steyptum undirstöðum.
Vegagerð. Helstu magntölur eru:
Fylling úr skeringum 30.000 m3
- Bergskeringar 9.000 m3
- Ræsalögn 200 m
- Styrktarlag 10.000 m3
- Burðarlag 2.600 m3
- Klæðing, tvöföld 15.000 m2
- Vegrið, uppsetning 700 m
Brú á Bjarnadalsá. Helstu magntölur eru:
Brúarvegrið 56 m
- Gröftur 1.400 m3
- Mótafletir 900 m2
- Steypustyrktarstál 44 tonn
- Spennt járnalögn 4 tonn
- Steinsteypa 380 m3
Verkinu skal að fullu lokið
1. júlí 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 15 . júní 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. júní 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.