Þrengslavegur (39), Lambafell – Litla Sandfell, styrking
Vegagerðin býður hér með út endurmótun, styrkingu og malbikun á 5,4 km kafla á Þrengslavegi (39-01), frá afleggjara að Lambafells námu að afleggjara að Litla-Sandfelli.
Verkið felst að stærstum hluta til í fræsingu núverandi vegar, lítilsháttar breikkun, jöfnun og útlögn malbiks. Helstu magntölur eru.
- Skeringar 1.546 m3
- Styrktarlag 1.980 m3
- Burðarlag 0/22 7.153 m3
- Fláafleygar 7.854 m3
- Malbik 60 mm 41.999 m2
- Gróffræsun slitlags 35.807 m2
- Vegrifflur 5.400 m
- Frágangur fláa 68.042 m2
- Malaraxlir 1.077 m2
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. september 2023.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með föstudeginum 3. febrúar 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. febrúar 2023.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.