Auglýst útboð

Suðursvæði 2023, blettanir með klæðingu

13.3.2023

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir á Suðursvæði, blettanir með klæðingu, árið 2023.

Helstu magntölur eru: 

              Blettun á Suðursvæði með klæðingar:    75.000 m2 

              Flutningur steinefna:                                      830 m3 

              Flutningur bindiefna:                                        83 m3 

Verki skal að fullu lokið 1. september 2023. 

 Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum  13. mars 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. mars 2023.  

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð. 

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.