Rangárvallavegur (264), Gunnarsholt - Hróarslækur
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í endurmótun 2,4 km Rangárvallavegar (264-02), frá Gunnarsholti að Hróarslæk.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 2.070 m3
- Fyllingar og fláafleygar 2.070 m3
- Burðarlag 2.710 m3
- Tvöföld klæðing 15.870 m2
- Frágangur fláa 12.650 m2
Verklok eru 15. september 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 14. júní 2021 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. júní 2021.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð..
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.