Auglýst útboð

Ólafsvík – Norðurtangi, þekja og lagnir 2022

14.3.2022

Hafnarstjórn Snæfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið „Ólafsvík – Norðurtangi,  þekja og lagnir 2022“. 

Helstu verkþættir eru:

·         Steypa upp 1stk. rafbúnaðarhús og 2 stk. stöpla undir ljósamöstur

·         Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn

·         Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum

·         Leggja fráveitulögn og koma fyrir niðurföllum

·         Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna síðan undir steypu.  

·         Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 2.840 m²  

Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. september 2022.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 14. mars 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. mars 2022.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign