Sauðárkrókur, sjóvörn og sandfangari 2020
Skagafjarðarhafnir og Vegagerðin óska eftir tilboðum í gerð sjóvarnar meðfram Þverárfjallsvegi og Skarðseyri á um 450 m kafla og lengingu Sandfangara um 30 m.
Helstu
magntölur:
· Útlögn á grjóti og kjarna úr námu, um 13.600 m3
· Upptekt og endurröðun 1.300 m3
Verkinu
í heild skal lokið eigi síðar en 31.
desember 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 6. júlí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 21. júlí 2020.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.