Auglýst útboð

Grundarfjörður - Norðurgarður, þekja, lagnir og raforkuvirki

10.5.2020

Hafnarsjóður Grundarfjarðarbæjar óskar eftir tilboðum í neðangreint verk. Útboðið nefnist:

Grundarfjörður - Norðurgarður, þekja, lagnir og raforkuvirki

Helstu magntölur:

·         Steypa upp rafbúnaðarhús, stöpla undir ljósamöstur og brunna

·         Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn

·         Leggja vatnslagnir

·         Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu þekju

·         Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 4.130 m²

·         Raforkuvirki

 Fyrsta áfanga skal lokið eigi síðar en 1. nóvember 2020. Verkinu í heild skal lokið eigi síðar en 1. júní 2021.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 11. maí 2020 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 26. maí 2020.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.