Dettifossvegur (862), Ásheiði - Tóveggur
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í gerð Dettifossvegar (862-03) í Norðurþingi í Norður-Þingeyjarsýslu frá Ásheiði og suður fyrir Tóvegg. Lengd útboðskaflans er 4,6 km.
Helstu magntölur eru:
- Bergskeringar 10.760 m3
- Aðrar skeringar 17.260 m3
- Fyllingar 112,010 m3
- Fláafleygar 24.520 m3
- Ræsalögn 120 m
- Endafrágangur ræsa 10 stk.
- Neðra burðarlag (styrktarlag) 26.850 m3
- Efra burðarlag 7.660 m3
- Tvöföld klæðing 34.685 m2
- Frágangur fláa með svarðlagi 61.800 m2
- Frágangur fláa 83.564 m2
Vinna við vegagerð getur hafist eftir 10. ágúst 2015.
1. Áfangi:
Verktaki skal ljúka ræsagerð, gerð fyllinga, fláafleyga, neðra burðarlags, efnisvinnslu og hluta af útlögn neðri hluta efra burðarlags fyrir 31. desember 2015.
2. Áfangi:
Verkinu skal að fullu lokið 15. júlí 2016.
Verkið skal hefja samkvæmt samþykktri verkáætlun, sem lögð er áhersla á að liggi fyrir í upphafi verks.
Útboðsgögnin eru seld í móttöku Vegagerðarinnar Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík frá og með mánudeginum 20. júlí 2015. Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 5. ágúst 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.