Auglýst útboð

Hornafjörður, viðhaldsdýpkun innan hafnar 2015-18

10.7.2015

Hafnarstjórn Hornafjarðar óskar eftir tilboðum í viðhaldsdýpkun innan hafnar árin 2015-18. 

Um er að ræða viðhaldsdýpkun sem vinna á árin 2015  og 2017 með möguleika á allt að tveggja ára framlengingu á samningstíma. Svæðin sem dýpka á eru innan hafnar.

Helstu magntölur:
Dýpkun á lausu efni  50.000 m³ annað hvert ár

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni, Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) og á Skrifstofu Hornafjarðarhafnar, Hafnarbraut 27,  780 Höfn, frá og með mánudeginum 13. júlí 2015. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu staði fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. júlí 2015 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.