Kópavogsgjáin, uppsetning lampa og stýribúnaðar
Vegagerðin býður hér með út endurnýjun lýsingar í Kópavogsgjánni, Hafnarfjarðarvegi (40). Um er að ræða niðurrif núverandi lýsingar og lagna, uppsetningu nýrra lampa og stýribúnað. Vegagerðin leggur til lampa og stýribúnað.
Helstu magntölur eru:
- Niðurtekt lampa 227 stk.
- Niðurtekt strengstiga 740 m
- Niðurtekt strengja 2650 m
- Strengstigar 485 m
- Uppsetning lampa 146 stk.
- Lagning strengja 5400 m
Áætlað er að ljúka verki fyrir 1. desember 2022.Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 19. september 2022 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. október 2022.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.