Hringvegur (1) um Steinavötn og Fellsá (EES útboð)
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í smíði nýrra brúa yfir Steinavötn og Fellsá ásamt uppbyggingu á Hringvegi í Suðursveit á tveimur köflum beggja megin brúa. Veita skal ám undir nýjar brýr og eftir að vegtenging er komin á þær skal fjarlægja bráðabirgðabrýr og –vegi og gera leiðigarða við enda brúar yfir Steinavötn.
Helstu magntölur vegna vega eru:
- Skeringar 6.365 m3
- Fyllingar 19.685 m3
- Burðarlag 2.345 m3
- Tvöföld klæðing 11.585 m2
- Fláafleygar 6.886 m2
- Ræsagerð 84 m
- Grjótvörn 3.995 m3
- Bráðabirgðabrú 20,6 m
Helstu magntölur vegna brúa eru:
- Vegrið 352 m
- Gröftur 5.100 m3
- Bergboltar 42 stk.
- Mótafletir 3.569 m2
- Steypustyrktarstál 201,5 tonn
- Spennt járnalögn 41,1 tonn
- Steypa 2.296 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. apríl 2021.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 30. september 2019 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudeginum 5. nóvember 2019.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.
Útboðið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.